Allison Lowrey spáir í leiki dagsins á HM

Allison fagnar marki með ÍBV í sumar.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Christian Pulisic.

Mynd: EPA

Hvað gera Skotarnir?

Mynd: EPA

Allison fagnar marki með ÍBV í sumar.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
HM veislan heldur áfram næsta sólarhringinn. Tvær af gestgjafaþjóðunum eiga leiki.
Allison Grace Lowrey, sóknarmaður ÍBV, spáir í leikina sem eru framundan. Hún hefur auðvitað trú á sínum mönnum í Bandaríkjunum.

Mexíkó 2 - 1 Suður-Kórea (01:00)
Mexíkóskir og suður-kóreskir stuðningsmenn hafa náð vel saman í Mexíkó og ég vona að sú stemning skili sér einnig inn á völlinn hjá báðum liðum. Bæði lið eru á toppi A-riðils með þrjú stig, en Mexíkó nýtur gríðarlegs heimavallarforskots. Af þeim sökum tel ég að Mexíkó vinni 2-1, en ekki án þess að Suður-Kórea veiti þeim harða keppni!
Bandaríkin 3 - 1 Ástralía (19:00)
Bandaríkin, baby!!! Ef Captain America, Christian Pulisic, er meiddur verður aðeins erfiðara fyrir liðið að finna leiðina að marki. 4-1 sigurinn gegn Paragvæ í fyrsta leik dugði til að hita liðið upp og stuðningsmennirnir fengu að sjá Folarin Balogun skora tvívegis. Bandaríkin munu halda boltanum mikið gegn Ástralíu og það mun skila sér í afgerandi 3-1 sigri fyrir Bandaríkjamenn. 'It’s called “Soccer!” USA! USA! USA!'
Skotland 1 - 0 Marokkó (22:00)
„No Scotland, No Party!“ Skosku stuðningsmennirnir hafa verið að leigja gula skólabíla í Boston og drekka upp allan bjórinn. Þeir koma með ótrúlega ástríðu í stúkuna. Marokkó er mjög sterkt lið og þarf á sigri að halda eftir jafntefli gegn Brasilíu. Ég á von á því að skoska liðið spili sterkan varnarleik og skilji allt eftir á vellinum í erfiðum 1-0 sigri.

Allir 104 leikirnir á HM verða í beinni á RÚV.
Samfelldar útsendingar frá því síðdegis og fram á nótt.
Kvöldin verða geggjuð í sumar!