Palli Árna var gríðarlega sáttur með sínar stelpur eftir sterkan sigur gegn Þrótti fyrr í kvöld. Fjölnir fer upp í 6. sæti deildarinnar eftir þennan sigur.
Lestu um leikinn: Fjölnir 2 - 1 Þróttur R.
„Við vorum töluvert sterkari í fyrri hálfleikinn og hefðum í raun getað klárað leikinn þá en þær koma sterkar inn í seinni og ég er stoltur af okkur að standa það af okkur.'' Hafði Palli að segja um leikinn.
„Við fáum á okkur víti í hverjum leik.'' Sagði Palli um markið sem þær fá á sig.
„Seli er frábær og Magga er frábær, þau eru að standa sig vel og það er frábært fyrir okkur.'' Hafði Palli að segja um samstarf markmannsins og markmannsþjálfararns.
Viðtalið í heild sinni má sjá í spilaranum hér að ofan.
Athugasemdir