Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   mán 19. júlí 2021 23:49
Brynjar Ingi Erluson
Harley Willard í Þór (Staðfest)
Harley Willard spilar með Þórsurum á næsta tímabili
Harley Willard spilar með Þórsurum á næsta tímabili
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Harley Willard, leikmaður Víkings Ólafsvíkur, mun ganga til liðs við Þór eftir tímabilið en þetta kemur í tilkynningu frá Þórsurum í kvöld.

Willard er fæddur árið 1997 og fæddur á Englandi en hann hefur spilað með Víkingum síðustu þrjú tímabil.

Hann hefur skorað 3 mörk í 12 leikjum í Lengjudeildinni í sumar og þá hefur hann gert 8 mörk í Mjólkurbikarnum.

Willard mun ganga til liðs við Þór eftir þetta keppnistímabil en Þórsarar greindu frá þessu í kvöld. Hann gerir þriggja ára samning við Þór.

Víkingur er í neðsta sæti deildarinnar með 2 stig en Þórsarar eru í 8. sæti með 16 stig.
Athugasemdir
banner
banner
banner