Fotbolti.net
19.07.26 - 18:31
Jóhann Þór Hólmgrímsson

Davíð Helgi til Lyngby (Staðfest) - Býst við því að verðmæti hans muni aukast verulega

Davíð Helgi til Lyngby (Staðfest) - Býst við því að verðmæti hans muni aukast verulega
Canon

Mynd: Lyngby

Davíð Helgi Aronsson er genginn til liðs við danska félagið Lyngby á eins árs lánssamningi frá Víkingi. Danska félagið hefur möguleika á að kaupa hann á meðan á láninu stendur.

Þessi 19 ára gamli leikmaður var á láni hjá Keflavík í sumar en Víkingur kallaði hann til baka og hefur lánað hann til danska félagsins. Hann spilaði 13 leiki í Bestu deildinni í sumar og skoraði eitt mark.
„Þetta er gríðarlega spennandi verkefni, ég veit ekki til þessa að þetta hafi gerst áður í sögu félagsins að leikmaður hafi verið lánaður í jafn sterka deild og reikna ég með að þetta muni auka verðmæti leikmannsins verulega," sagði Kári Árnason yfirmaður fótboltamála hjá Víkingi.

Lyngby er nýliði í efstu deild í Danmörku eftir að hafa staðið uppi sem sigurvegar í næst efstu deild á síðustu leiktíð. Ísak Snær Þorvaldsson og Daníel Freyr Kristjánsson eru leikmenn liðsins.




Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.