23.10.26 - 21:37
Magnús Atlason
Ian Jeffs: Ég er mjög stoltur
Auglýsing

Ian Jeffs, þjálfari Breiðabliks.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Ian Jeffs, þjálfari Breiðabliks.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

"Það er erfitt að lýsa tilfinningunni," sagði Ian Jeffs, þjálfari Breiðabliks, eftir 6-2 sigur á FH í kvöld. Íslandsmeistaratitillinn var þegar tryggður fyrir leik en skjöldurinn fór á loft skömmu fyrir viðtalið sem sjá má hér að ofan.
Lestu um leikinn: Breiðablik 6 - 2 FH
Ian tók við liðinu í nóvember síðastliðnum svo nú var hans fyrsta tímabili að ljúka sem þjálfari liðsins. Þetta er þriðji Íslandsmeistaratitill Breiðabliks í röð.
"Ég var ráðinn til að halda góðu gengi áfram og reyna að halda Breiðablik á toppnum. Við misstum fleiri leikmenn en við áttum von á eftir seinasta tímabil en við erum búin að byggja upp rosa gott lið með nýja leikmenn sem koma í stór hlutverk og leikmenn sem eru búnir að koma til okkar fyrir þetta tímabil."
"Það er búið að myndast gott lið og geggjuð stemming og þetta er niðurstaðan."
Hrafnhildur Ása Halldórsdóttir skoraði fimm mörk í leiknum.
"Þegar hún er on, þá er hún alveg on. Eins og maður sér, hún er búin að detta stundum í gír í sumar. Þetta er ekki eini leikurinn þar sem hún hefur sýnt svona frammistöðu. "
Hvernig var að klára mótið og fá að lyfta bikarnum á heimavelli í síðasta leik tímabilsins?
"Þetta er frábært fyrir okkur að klára mótið á góðum leik á móti topp FH liði og vinna að mínu mati sannfærandi í dag. Ég er mjög stoltur af liðinu."
Sjáðu viðtalið í heild sinni efst í fréttinni.