23.10.26 - 21:30
Sóldís Erla
Jóhann Kristinn: Við erum að spila okkar síðustu leiki eins og besta lið á landinu
Auglýsing

Jóhann Kristinn þjálfari Þróttar

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Jóhann Kristinn þjálfari Þróttar

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Jóhann Kristinn tók við kvennaliði Þróttar fyrir tímabil og átti gott tímabil með liðinu.
Lestu um leikinn: Þróttur R. 3 - 2 Grindavík/Njarðvík
„Við Þjáðumst svolítið í byrjun tímabils og vorum sjálfum okkur verstar á margan hátt en ég er bara fullur af þakklæti og stolti í því hvernig stelpurnar og allir náðu að snúa þessu við."
Jóhann átti skemmtilegt tímabil með Þrótti þar sem stelpurnar unnu Mjólkurbikarinn.
.. Það stóð klárlega uppúr að hafa unnið stóran titil og ég er mjög stoltur af stelpunum að hafa unnið sig út úr allskonar eftir byrjunina á tímabilinu. Það sýnir alvöru karakter og þroska hjá leikmönnum, það gefur mér vísbendingu um hvað við getum afrekað á næsta tímabili"
Þróttara stelpur enduðu tímabilið í 4.sæti með 29 stig og Bikarmeistaratitil í farteskinu.