Fotbolti.net
19.07.26 - 21:18
Jóhann Þór Hólmgrímsson

HM: Framlengt í úrslitaleiknum - Enzo Fernandez sá rautt

HM: Framlengt í úrslitaleiknum - Enzo Fernandez sá rautt
Canon

Mynd: EPA

Það er framlenging í úrslitaleiknum á HM milli Spánar og Argentínu. Spánverjar voru með yfirhöndina í fyrri hálfleik en tókst ekki að skapa sér mikið.

Argentínumenn virtust mæta til leiks með það hugarfar að verjast og taka hart á Spánverjum.
Lisandro Martínez fékk fyrsta gula spjaldið undir lok fyrri hálfleiks en þurfti að fara af velli stuttu síðar vegna meiðsla.

Enzo Fernandez fékk gult spjald undir lok seinni hálfleiks og fékk síðan sitt annað gula spjald og þar með rautt í uppbótatíma.

Lamine Yamal fékk síðasta tækifærið í venjulegum leiktíma þegar hann tók aukaspyrnu en Emiliano Martínez varði frábærlega frá honum.

Sjáðu rauða spjaldið hér
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.