Fotbolti.net
20.07.26 - 13:00
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke

Iraola tekur inn nýjan spænskan markmannsþjálfara

Iraola tekur inn nýjan spænskan markmannsþjálfara
Canon

Mynd: Napoli

Andoni Iraola hefur fengið Alejandro Rosalen inn í þjálfarateymi sitt en Rosalen mun sjá um að þjálfa markverði Liverpool.

Rosalen er 49 ára og kemur inn í teymið í stað Xavi Valero sem var markmannsþjálfari á liðnu tímabili.
Rosalen er reynslumikill en hann kemur frá Napoli þar sem hann var í fimm ár. Napoli varð tvívegis ítalskur meistari í tíð Rosalen hjá félaginu.

Áður var hann hjá Fiorentina á Ítalíu og Videoton í Ungverjalandi, en ferillinn hófst í akademíunni hjá Valencia á Spáni.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.