Fotbolti.net
19.07.26 - 20:07
Ívar Björgvinsson

Jón Þór eftir stórt tap: Helvíti litlir í okkur

Auglýsing
Jón Þór eftir stórt tap: Helvíti litlir í okkur
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

KR tók á móti Stjörnunni á Meistaravöllum í 15. umferð Bestu deildar karla. Leiknum lauk með 5-0 stórsigri KR en Fótbolti.net var á staðnum og heyrði í Jóni Þór Haukssyni, þjálfara Stjörnunnar, eftir leikinn.

Lestu um leikinn: KR 5 - 0 Stjarnan

„Það fór allt saman úrskeiðis, við vorum ekki í standi í þessum leik og urðum bara helvíti litlir í okkur eftir því sem leið á leikinn. Við hittum á KR-ingana frábæra hér í dag en gerðum þeim líka helvíti þægilegt fyrir.''

Jón Þór gerði sex breytingar frá síðustu umferð en á milli var auðvitað Evrópuleikur í Færeyjum og annar í næstu viku.

„Við stillum upp hörkuliði hérna í dag og þetta eru allt öflugir leikmenn þannig það hafði engin áhrif. Undirbúningurinn var bara ekki góður og liðið ekki tilbúið í þennan leik. Það vantaði bara allt hjá okkur, við vorum á eftir þeim og náðum ekki að gera okkur það sem við ætluðum í þessum leik, við vorum bara mjög langt frá því.''

Nýju mennirnir hjá Stjörnunni voru að spila sínar fyrstu mínútur fyrir Stjörnuna en Árni Vill byrjaði og Ari Leifs kom inn á.

„Jú klárlega, núna við eigum auðvitað hörkuleik í Evrópu á fimmtudaginn, annað Evrópuverkefni þar sem við þurfum bara að byrja að huga að strax í fyrramálið og skilja þetta eftir hér.''

Viðtalið í heild sinni má sjá í spilaranum að ofan.

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.