20.07.26 - 10:51
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
ÍBV án varamarkmanns í síðustu leikjum - „Fékk leyfi til að fara heim"

Marcel Zapytowski byrjaði tímabilið í marki ÍBV en missti svo sætið í liðinu.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Omar Sowe skoraði og fékk rautt gegn KA í gær. Hann hefur verið orðaður við KR.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Ari er í dag aðalmarkvörður ÍBV. Hann er í láni frá KÍ Klaksvík.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Marcel Zapytowski byrjaði tímabilið í marki ÍBV en missti svo sætið í liðinu.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Það hefur vakið athygli að ÍBV hefur ekki verið með varamarkmann á skýrslu. Ari í Halaldstovu Petersen er aðalmarkvörður liðsins en Marcel Zapytowksi, sem stóð vaktina í marki liðsins á síðasta tímabili, hefur ekki verið í hóp í síðustu leikjum og enginn í hans stað sem varamarkvörður.

TENGT EFNI
Líklega á förum frá ÍBV
„Við erum með 2. flokks peyja, Max (Maksymilian Antoni Bulga), á æfingum. Marcel fékk leyfi til að taka smá frí og það er í rauninni bara staðan. Það er bara ákvörðun þjálfarans að vera ekki með varamarkmann á skýrslu, við skiptum okkur ekki að því," segir Magnús Sigurðsson sem er meðstjórnandi í fótboltaráði ÍBV.
Verður Marcel í hóp í næsta leik eða gæti hann verið á förum?
„Það er bara óljóst, engin ákvörðun sem hefur verið tekin. Hann er okkar markmaður, er með samning og þannig er staðan. Hann var í Póllandi, fékk leyfi til að fara heim, og sneri til baka skömmu fyrir leikinn í gær. Það er svo undir þjálfaranum komið hvort hann verði í hóp í næsta leik."
Ánægðir með hópinn og viðræður við Sowe
Eru Eyjamenn að skoða eitthvað á markaðnum?
„Við erum eins og alltaf með augun opin ef eitthvað álitlegt býðst, en við erum ekki á fullu að leita að einhverjum leikmönnum. Við erum mjög sáttir með hópinn."
Omar Sowe hefur verið orðaður við KR, er pottþétt að hann klárar allavega tímabilið í Eyjum?
„Já, það er 100%. Við eigum í samtali við hann um mögulega framlengingu á samningi hans," segir Magnús.
Næsti leikur ÍBV er útileikur gegn Breiðabliki eftir viku.
Verður Marcel í hóp í næsta leik eða gæti hann verið á förum?
„Það er bara óljóst, engin ákvörðun sem hefur verið tekin. Hann er okkar markmaður, er með samning og þannig er staðan. Hann var í Póllandi, fékk leyfi til að fara heim, og sneri til baka skömmu fyrir leikinn í gær. Það er svo undir þjálfaranum komið hvort hann verði í hóp í næsta leik."
Ánægðir með hópinn og viðræður við Sowe
Eru Eyjamenn að skoða eitthvað á markaðnum?
„Við erum eins og alltaf með augun opin ef eitthvað álitlegt býðst, en við erum ekki á fullu að leita að einhverjum leikmönnum. Við erum mjög sáttir með hópinn."
Omar Sowe hefur verið orðaður við KR, er pottþétt að hann klárar allavega tímabilið í Eyjum?
„Já, það er 100%. Við eigum í samtali við hann um mögulega framlengingu á samningi hans," segir Magnús.
Næsti leikur ÍBV er útileikur gegn Breiðabliki eftir viku.

Omar Sowe skoraði og fékk rautt gegn KA í gær. Hann hefur verið orðaður við KR.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Ari er í dag aðalmarkvörður ÍBV. Hann er í láni frá KÍ Klaksvík.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Stöðutafla
| # | Lið | L | mun | Stig |
|---|---|---|---|---|
| 1 | Víkingur R. | 19 | +44 | 48 |
| 2 | KR | 19 | +25 | 40 |
| 3 | Fram | 19 | +13 | 40 |
| 4 | Breiðablik | 19 | +6 | 30 |
| 5 | ÍA | 19 | -4 | 25 |
| 6 | Keflavík | 19 | -4 | 25 |
| 7 | Valur | 19 | -5 | 23 |
| 8 | Stjarnan | 19 | -12 | 21 |
| 9 | ÍBV | 19 | -11 | 17 |
| 10 | FH | 19 | -12 | 17 |
| 11 | KA | 19 | -12 | 16 |
| 12 | Þór | 19 | -28 | 15 |
