Fotbolti.net
19.07.26 - 22:24
Jóhann Þór Hólmgrímsson

Slagsmál brutust út eftir lokaflautið - „Paredes hefur verið til skammar"

Slagsmál brutust út eftir lokaflautið - „Paredes hefur verið til skammar"
Canon

Mynd: EPA

Það brutust út slagsmál eftir að Spánn vann Argentínu í úrslitum á HM í kvöld.

Argentínumenn létu finna fyrir sér og Enzo Fernandez fékk rautt spjald í uppbótatíma í venjulegum leiktíma.

Leandro Paredes kom inn á í hálfleik og fékk gult spjald stuttu síðar. Hann lét finna fyrir sér þegar búið var að flauta til leiksloka. Hann réðst á Eric Garcia og annan leikmann Spánar og fékk rautt spjald.
„Ég elska keppnisskapið í Argentínumönnum en Paredes hefur verið til skammar í síðustu leikjum," sagði Gary Neville, sérfræðingur á ITV.

„Paredes kastaði kýldi einhvern í andlitið. Hann fór fyrir þeim. Það er enginn staður eða pláss fyrir þetta. Við vitum hversu mikið þetta þýðir fyrir þá og við vitum hversu mikið það er sárt að tapa, en það er leið til að tapa. Alltof oft höfum við séð þetta frá Argentínu. Viðbrögðin eftir lokaflautið eru hræðileg," sagði Alan Shearer sérfræðingur hjá BBC.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.