Fotbolti.net
19.07.26 - 20:53
Jóhann Þór Hólmgrímsson

Rooney ekki hrifinn af hálfleikssýningunni - „Þetta var drasl"

Justin Bieber

Justin Bieber

Canon

Mynd: EPA

Það var stór hálfleikssýning á úrslitaleik HM þar sem Spánn og Argentína eigast við.

Margir heimsfrægir söngvarar komu fram. Þar á meðal Madonna, Shakira, BTS og Justin Bieber. Þá komu katakterarnir Ted Lasso og Prúðuleikararnir við sögu.
Fólk hefur misjafnar skoðanir á þessari sýningu en seinni hálfleikurinn hófst tæplega stundarfjórðungi síðar en venjulega vegna sýningarinnar.

Wayne Rooney, sérfræðingur á BBC, var vægast sagt ekki hrifinn.

„Ég skal vera heiðarlegur, (hápunkturinn var) þegar þetta var búið. Mér líkar við marga af þessum listamönnum, mér fannst þetta vera drasl," sagði Rooney.

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.