Valsarar mæta Íslendingaliði vinni þeir Bosníumennina

Mæta Zrinjski Mostar á fimmtudaginn.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Í stóru hlutverki hjá GAIS.

Mynd: GAIS

Mæta Zrinjski Mostar á fimmtudaginn.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Valur mætir annaðhvort sænska félaginu GAIS eða dönsku bikarmeisturunum í Nordsjælland vinni liðið einvígið gegn Zrinjski Mostar í 2. umferð Sambandsdeildarinnar.
Valsmenn fá Zrinjski Mostar í heimsókn á Hlíðarenda næstkomandi fimmtudag. Síðari leikurinn fer fram í Bosníu og Hersegóvínu viku síðar.

Róbert Frosti Þorkelsson er leikmaður GAIS og hefur hann verið í stóru hlutverki hjá liðinu á tímabilinu. Þá var Jóhann Berg Guðmundsson orðaður við félagið nýverið.
Hjá Nordsjælland leikur Daníel Ingi Jóhannesson, yngri bróðir Ísaks Bergmanns og sonur Jóhannesar Karls Guðjónssonar. Daníel kom við sögu í tveimur af síðustu fimm leikjum liðsins á síðasta tímabili.
Þá fór Alexander Rafn Pálmason út til Nordsjælland í upphafi mánaðar eftir að hafa leikið fyrri hluta tímabils með KR í Bestu deildinni.
Leikdagarnir í 3. umferð Sambandsdeildarinnar eru 6. og 13. ágúst.