Fotbolti.net
20.07.26 - 06:00
Jóhann Þór Hólmgrímsson

Spánn bætti magnað met Ítalíu

Spánn bætti magnað met Ítalíu
Canon

Mynd: EPA

Spánn varð heimsmeistari í gær eftir sigur á Argentínu eftir framlengdan leik. Ferran Torres skoraði eina mark leiksins.

Spænska landsliðið hefur verið á miklu skriði undanfarin ár en liðið varð Evrópumeistari árið 2024.
Liðið er án taps í síðustu 38 leikjum en liðið bætti met Ítalíu sem fór í gegnum 37 leiki í röð án þess að tapa frá 2018-21.

Spænska liðið tapaði 1-0 gegn Kólumbíu í mars 2024 en siðan þá hefur liðið unnið 29 leiki og gert níu jafntefli.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.