Fotbolti.net
19.08.15 - 18:30
Arnar Geir Halldórsson

Florian Thauvin til Newcastle (Staðfest)

Florian Thauvin mættur á St.James´ Park

Florian Thauvin mættur á St.James´ Park

Canon

Mynd: Getty Images

Newcastle United hefur fest kaup á franska kantmanninum Florian Thauvin.
Thauvin kemur til Newcastle frá Marseille. Í hina áttina fer Remy Cabella á láni til eins árs sem hluti af kaupverðinu en Cabella tókst ekki að sýna sig og sanna hjá Newcastle á síðustu leiktíð.

Thauvin gerir fimm ára samning við Newcastle en þessi 22 ára Frakki skoraði fimm mörk og lagði upp átta fyrir Marseille á síðustu leiktíð.

Auk þess að lána Cabella til franska liðsins borgar Newcastle rúmlega 10 milljónir punda fyrir Thauvin.

Thauvin mun leika í treyju númer 20 hjá Newcastle en hann er fimmti leikmaðurinn sem gengur til liðs við Steve McClaren og félaga í sumar en áður hafði liðið keypt þá Georginio Wijnaldum, Aleksandar Mitrovic, Chancel Mbemba og Ivan Toney.

Heimild: Newcastle

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.