19.08.15 - 13:30
Magnús Már Einarsson
Gokhan Inler til Leicester (Staðfest)

Inler í leik á Laugardalsvelli.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Inler í leik á Laugardalsvelli.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Leicester City hefur keypt svissneska miðjumanninn Gokhan Inler frá Napoli.
Hinn 31 árs gamli Inler krotaði undir þriggja ára samning hjá Leicester.
Inler gæti leikið sinn fyrsta leik gegn Tottenham á laugardag ef gengið verður frá öllum pappírsmálum í tæka tíð.

Inler hefur leikið með Napoli frá því árið 2011 en hann var áður á mála hjá Udinese.
Hann á 84 landsleiki að baki með Sviss en hann spilaði bæði á HM 2010 og 2014.
Claudio Ranieri og lærisveinar hans í Leicester hafa byrjað tímabilið vel en liðið er með fullt hús stiga eftir tvo leiki.