19.08.15 - 19:30
Arnar Geir Halldórsson
Real Madrid goðsögn tekur við Marseille (Staðfest)

Michel er tekinn við Marseille

Mynd: Getty Images

Michel er tekinn við Marseille

Mynd: Getty Images
Spænski knattspyrnustjórinn, Michel, er tekinn við franska úrvalsdeildarliðinu Marseille.
Hann tekur við liðinu af Marcelo Bielsa sem sagði starfi sínu lausu eftir tap í fyrsta deildarleik tímabilsins.
Michel, sem lék yfir 500 leiki fyrir Real Madrid á leikmannaferli sínum, þjálfaði síðast gríska stórliðið Olympiakos en lét af störfum þar í janúar á þessu ári.
Þessi 52 ára gamli Spánverji gerði góða hluti í Grikklandi þar sem hann vann tvo deildartitla og einn bikartitil á tveimur árum en auk Olympiakos hefur Michel stýrt Sevilla, Getafe og Rayo Vallecano á þjálfaraferlinum.
Marseille lenti í 4.sæti á síðustu leiktíð í Ligue 1 og hefur farið illa af stað á þessu tímabili.

Heimild: Marseille