Svíþjóð: Fyrsta tap Rosengard kom gegn Hlín Eiríks


Mynd: Piteå


Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð


Mynd: Piteå

Hlín Eiríksdóttir byrjaði í fremstu víglínu og spilaði fyrstu 82 mínúturnar í fræknum sigri Piteå gegn toppliði sænsku deildarinnar Rosengård.
Þetta reyndist fyrsta tap Rosengård á deildartímabilinu þar sem liðið trónir á toppinum með 39 stig eftir 16 umferðir. Piteå siglir lygnan sjó um miðja deild með 27 stig.
Guðrún Arnardóttir lék allan leikinn í hjarta varnarinnar hjá Rosengard en tókst ekki að koma í veg fyrir tapið.
Berglind Rós Ágústsdóttir lék þá allan leikinn er Örebro steinlá gegn Häcken. Hacken vann leikinn 6-0.
Häcken er aðeins fimm stigum frá Evrópusæti eftir sigurinn á meðan Örebro siglir lygnan sjó í neðri hluta deildarinnar, þrettán stigum frá fallsvæði.
Piteå 2 - 1 Rosengård
1-0 K. Guillou ('11)
1-1 R. Knaak ('32)
2-1 J. Johansson ('70)
Häcken 6 - 0 Örebro


Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
