Fotbolti.net
19.09.15 - 07:00
Ívan Guðjón Baldursson

Jurcevic aðstoðar Bilic hjá West Ham (Staðfest)

Slaven Bilic og Nikola Jurcevic stýrðu Króatíu saman í sex ár.

Slaven Bilic og Nikola Jurcevic stýrðu Króatíu saman í sex ár.

Canon

Mynd: Getty Images

Nikola Jurcevic hefur verið ráðinn sem nýr aðstoðarknattspyrnustjóri West Ham United.

Slaven Bilic hefur byrjað tímabilið vel með West Ham og ætlaði að ráða Jurcevic til sín strax í júní en hann fékk ekki atvinnuleyfi fyrr en nú.
Jurcevic var liðsfélagi Slaven Bilic í króatíska landsliðinu á sínum tíma og hafa þeir starfað náið saman síðan 2006, þegar þeir tóku við króatíska landsliðinu. Síðan þá hafa þeir starfað saman hjá Lokomotiv Moskvu og Besiktas.

„Ég er mjög ánægður með að geta loksins hafið störf. Ég var snöggur að svara játandi þegar Bilic bauð mér stöðuna,\" sagði Jurcevic.

Jurcevic stýrði NK Zagreb, Dinamo Zagreb, SV Austria Salzburg og Slaven Belupo áður en hann tók til starfa sem aðstoðarmaður Bilic hjá króatíska landsliðinu.

Heimild: BBC

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.