Fotbolti.net
19.09.15 - 11:30
Ívan Guðjón Baldursson

Vesna hjá Val næstu tvö árin (Staðfest)

Vesna hjá Val næstu tvö árin (Staðfest)
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Einar Ásgeirsson

Kvennaboltinn
Vesna Elísa Smiljkovic er búin að skrifa undir tveggja ára samning við Val.

Vesna var meðal allra bestu leikmanna kvennaliðs Vals sem átti lélegt tímabil og endaði í sjöunda sæti Pepsi-deildarinnar.
Vesna er 32 ára gömul og gerði 9 mörk á síðustu leiktíð. Hún gekk til liðs við Val í janúar á þessu ári eftir að hafa gengt lykilhlutverki í liði ÍBV.

„Það er frábært að vera áfram í Val. Stjórn knattspyrnudeildar hafði samband við mig fljótlega eftir að leiktíðin kláraðist og vildi halda mér,\" sagði Vesna samkvæmt vefsíðu Vals.

„Mér líður mjög vel í Val, félagið er sem mín önnur fjölskylda. Leikmannahópurinn er frábær og gríðarlega margir hæfileikaríkir ungir leikmenn í hópnum sem vilja læra knattspyrnu.

„Mér finnst frábært hvað þær eru tilbúnar að leggja mikið á sig, þetta eru leikmenn sem líta upp til mín, vilja reglulega æfa aukalega með mér eftir æfingar og eru tilbúnar að leggja 200% á sig til að verða betri.

„Þjálfarateymið er mjög gott sem og annað við félagið. Valsliðið er í mikilli þróun og mótun en spilar samt góðan fótbolta í dag, og það eru mjög spennandi tímar framundan og allir róa í sömu átt.

„Ég er mjög glöð að vera áfram í Val.\"

Heimild: Valur

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.