Arsenal hefur leik í F-riðli Evrópudeildarinnar í dag og fær verðugt verkefni í fyrsta leik, útileik gegn Eintracht Frankfurt. Leikurinn hefst klukkan 16:55.
Arsenal gerir sjö breytingar á byrjunarliðinu frá vonbrigðunum gegn Watford. Unai Emery veðjar á blöndu af reynslu og ungum leikmönnum.
Arsenal gerir sjö breytingar á byrjunarliðinu frá vonbrigðunum gegn Watford. Unai Emery veðjar á blöndu af reynslu og ungum leikmönnum.
Pierre-Emerick Aubameyang, Granit Xhaka, Sead Kolasinac og David Luiz halda sætum sínum.
Bukayo Saka, 18 ára vængmaður, og hinn 19 ára Emile Smith Rowe byrja. Einnig hinn tvítugi Joe Willock.
Byrjunarlið Arsenal: Martinez, Chambers, Mustafi, Luiz, Kolasinac, Xhaka, Torreira, Willock, Smith Rowe, Aubameyang, Saka.
(Varamenn: Leno (m), Ceballos, Maitland Niles, Pepe, Nelson, Guendouzi, Martinelli)
Byrjunarlið Eintracht: Trapp, Sow, Dost, Kostic, Hinteregger, Kamada, Abraham, Hasebe, Da Costa, Kohr, Silva.
(Varamenn Ronnow (m), N'Dicka, Falette, Fernandes, Joveljic, Chandler, Paciencia)
Athugasemdir