Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   lau 19. september 2020 17:06
Ívan Guðjón Baldursson
Einkunnir dagsins: James bestur þó Calvert-Lewin hafi sett þrennu
Mynd: Getty Images
Mynd: Getty Images
Tveimur fyrstu leikjum dagsins er lokið í ensku úrvalsdeildinni og hefur Sky Sports gefið leikmönnum einkunnir.

Fjórtán mörk voru skoruð í leikjunum tveimur. Everton gerði fimm þeirra gegn tíu leikmönnum West Bromwich Albion. Gylfi Þór Sigurðsson kom inn af bekknum og fékk 5 í einkunn.

Dominic Calvert-Lewin skoraði þrennu en var ekki valinn maður leiksins, heldur var kólumbíska goðsögnin James Rodriguez bestur. Hann átti afar góðan leik þar sem hann skoraði og lagði upp og fékk 8 í einkunn, rétt eins og Calvert-Lewin. Richarlison lagði upp tvö og átti þátt í tveimur öðrum og fékk einnig 8, rétt eins og hægri bakvörðurinn Seamus Coleman.

Kieran Gibbs var verstur á vellinum og fékk 4 í einkunn, rétt eins og varamennirnir þrír sem Slaven Bilic skipti inná í síðari hálfleik.

Everton: Pickford (6), Coleman (8), Mina (7), Keane (7), Digne (7), Doucoure (6), Allan (6), Gomes (7), James (8), Calvert-Lewin (8), Richarlison (8).
Varamenn: Sigurdsson (5), Iwobi (5)

West Brom: Johnstone (6), Furlong (6), Ajayi (6), Bartley (6), O’Shea (6), Gibbs (4), Pereira (7), Livermore (7), Sawyers (5), Diangana (7), Robinson (6).
Varamenn: Phillips (4), Edwards (4), Fields (4).



Leeds United hafði þá betur í nýliðaslag gegn Fulham þar sem Helder Costa var maður leiksins með 8 í einkunn.

Patrick Bamford fékk einnig 8 en versti maður vallarins var Robin Koch, nýr miðvörður Leeds, sem fékk 4 fyrir sinn þátt.

Aleksandar Mitrovic setti tvennu fyrir Fulham en náði ekki að skora 8 í einkunn.

Leeds: Meslier 5, Ayling 6, Koch 4, Cooper 5, Dallas 5, Phillips 6, Klich 7, Costa 8, Harrison 7, Rodrigo 6, Bamford 8
Varamenn: Roberts 6, Alioski 6

Fulham: Areola 6, Tete 6, Odoi 5, Hector 5, Bryan 5, Reed 7, Anguissa 7, Onomah 5, Cavaleiro 6, Kamara 6, Mitrovic 7
Varamenn: De Cordova Reid 7, Kebano 6, Lemina 6
Athugasemdir
banner
banner