Tindastóll 2 - 0 ÍA
1-0 Aldís María Jóhannsdóttir ('35)
2-0 Jacqueline Altschuld ('77)
1-0 Aldís María Jóhannsdóttir ('35)
2-0 Jacqueline Altschuld ('77)
Tindastóll tók á móti ÍA í fyrri leik dagsins í Lengjudeild kvenna. Tindastóll var í toppsætinu fyrir leikinn og ÍA í þriðja neðsta sæti deildarinnar.
Leikurinn var liður í 14. umferð deildarinnar og alls eru leiknar átján umferðir. Aldís María Jóhannsdóttir kom heimakonum yfir á 35. mínútu og staðan var 1-0 í hálfleik.
Jaqcueline Alstschuld bætti við öðru marki heimakvenna á 77. mínútu og 2-0 urðu lokatölur leiksins. Tindastóll er með 37 stig og þarf fimm stig í viðbót til að tryggja sér sæti í efstu deild. Liðið er ellefu stigum fyrir ofan Hauka í þriðja sætinu en Haukar eiga leik til góða.
ÍA er fimm stigum fyrir ofan Fjölni sem er í næstneðsta sæti deildarinnar.
Athugasemdir