Fotbolti.net
19.09.20 - 07:30
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke

Tryggvi Hrafn: Mun láta samninginn renna út og sé svo hvað kemur upp

Tryggvi Hrafn

Tryggvi Hrafn

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Ingunn Hallgrímsdóttir

Tryggvi Hrafn Haraldsson, 23 ára sóknarmaður ÍA, var til viðtals hjá <i>Vísi/Stöð 2 Sport</i> eftir tap ÍA gegn Val á fimmtudagskvöld.

<a href="https://fotbolti.net/game.php?action=view_article&id=4425" target="_blank">Lestu um leikinn</a>
Samningur Tryggva við ÍA rennur út eftir þetta tímabil og rætt hefur verið um hans næsta skref. Í hlaðvarpsþættinum Dr. Football var rætt um að hann hafi þegar samið við Val og muni leika með Hlíðarendafélaginu á næstu leiktíð.

Tryggvi var spurður út í framtíð sína á fimmtudaginn: „Ég mun klára tímabilið með ÍA. Ég mun renna út af samning og svo ætla ég að sjá hvað kemur upp eftir það," sagði Tryggvi við Vísi.

Sjá einnig:
Stefán Teitur í KR og Tryggvi Hrafn í Val eftir tímabil?

Heimild: Vísir

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.