19.10.26 - 10:30
Elvar Geir Magnússon
Netflix hefur tryggt sér HM réttinn á Spáni

Lamine Yamal, stórstjarna Spánar.

Mynd: EPA

Mynd: EPA

Lamine Yamal, stórstjarna Spánar.

Mynd: EPA
Streymisveitan Netflix hefur tryggt sér réttindi til að sýna HM 2030 á Spáni og í Andorra.
„Við munum bjóða upp á alla 104 leiki stærstu fótboltakeppni heims í beinni útsendingu,“ segir Netflix í yfirlýsingu.
Ríkjandi meistarar Spánar munu halda HM 2030 ásamt Portúgal og Marokkó. Argentína, Úrúgvæ og Paragvæ munu einnig halda leiki til að fagna aldarafmæli mótsins.
Bandaríska áskriftarþjónustan sagði að samþykkt hefði verið að einn leikur á hverjum leikdegi verði aðgengilegur í opinni dagskrá. Allir leikir Spánar og úrslitaleikurinn eru meðal leikja sem verða í opinni dagskrá.
Netflix hefur verið að gera sig meira og meira gildandi í íþróttaútsendingum og hefur meðal annars sýnt fjölbragðaglímu, hnefaleika og NFL-leiki í beinni útsendingu. Þá er veitan með réttindi að HM kvenna í Bandaríkjunum og Kanada 2027 og 2031.