19.11.14 - 06:00
Magnús Már Einarsson
Almar Daði í Leikni F. (Staðfest)
Tíu skrifuðu undir

Almar Daði Jónsson.

Mynd: 123.is/leiknirfaskrudsfirdi

Almar Daði Jónsson.

Mynd: 123.is/leiknirfaskrudsfirdi
Leiknir Fáskrúðsfirði hefur fengið liðsstyrk fyrir átökin í 2. deild næsta sumar.
Félagið hefur endurheimt framherjann Almar Daða Jónsson frá Fjarðabyggð.
Almar Daði skoraði sex mörk þegar Fjarðabyggð vann 2. deildina í sumar en í fyrra skoraði hann 19 mörk í 3. deildinni með Leiknismönnum.

Arek Jan Grzlak, Björgvin Stefán Pétursson, Björgvin Snær Ólafsson, Dagur Már Óskarsson, Fannar Bjarki Pétursson, Guðmundur Arnar Hjálmarsson, Hilmar Freyr Bjartþórsson, Sólmundur Aron Björgúlfsson og Unnar Ari Hansson hafa einnig skrifað undir samninga við Leikni Fáskrúðsfirði.
Þá skrifaði þjálfarinn Viðar Jónsson einnig undir nýjan tveggja ára samning á uppskeruhátíð Leiknis um helgina. Þar var Björgvin Stefán valinn knattspyrnumaður ársins og Kristófer Páll Viðarsson efnilegastur.