Fotbolti.net
19.11.14 - 18:00
Magnús Már Einarsson

Edda ráðin aðstoðarþjálfari KR (Staðfest)

Edda Garðarsdóttir.

Edda Garðarsdóttir.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Kvennaboltinn
Edda Garðarsdóttir hefur verið ráðin aðstoðarþjálfari meistaraflokks kvenna hjá KR og styrktarþjálfari meistaraflokks og yngri flokka félagsins.

Edda er öllum hnútum kunnug enda kom hún ung í KR og lék bæði með yngri flokkum félagsins og frá 13 ára aldri með meistaraflokki, alls 218 leiki og er 8. leikjahæsti leikmaður KR.

Edda spilaði síðast með KR árið 2008 áður en hún hélt út í atvinnumennsku. Þá er hún einn leikjahæsti leikmaður íslenska landsliðsins frá upphafi.

Í sumar var Edda aðstoðarþjálfari hjá Val auk þess sem hún dæmdi nokkra leiki.
,,KR er í miklu uppbyggingarstarfi þessi misserin og er ráðning Eddu liður í að auka gæði kvennaboltans í KR. KR ingar bjóða Eddu velkomna aftur heim og binda miklar vonir við að reynsla hennar og þekking nýtist við að koma KR aftur í fremstu röð í kvennaboltanum,\" segir á heimasíðu KR.

,,Þá teljum við að frábært teymi hafi verið myndað í kringum meistaraflokk kvenna í KR, fyrir komandi tímabil, með Björgvin Karl þjálfara í fararbroddi, Eddu aðstoðar – og styrktarþjálfara, Guðlaugu Jónsdóttur liðstjóra og Arnari Má Kristjánssyni sjúkraþjálfara.\"

Heimild: Heimasíða KR

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.