19.11.14 - 14:49
Elvar Geir Magnússon
Malky Mackay nýr stjóri Wigan (Staðfest)

Malky Mackay er nýr stjóri Wigan.

Mynd: Getty Images

Malky Mackay er nýr stjóri Wigan.

Mynd: Getty Images
Malky Mackay hefur verið ráðinn nýr knattspyrnustjóri Wigan Athletic. Liðið á sér fámennan en harðan stuðningsmannahóp hér á landi.
Mackay hefur verið atvinnulaus síðan Vincent Tan rak hann frá Cardiff City fyrir ári síðan.

Crystal Palace íhugaði að ráða Mackay í sumar en það mál fór af borðinu þar sem SMS-skilaboð frá Mackay láku á netið en þau innihéldu kynþáttaníð, hómófóbíu og karlrembu.
Ráðning hans til Wigan er umdeild en eigandinn Dave Whelan hlustar ekki á mótmælin og segir hann rétta manninn til að leiða liðiðaftur í ensku úrvalsdeildina enda þekki hann báðar deildir inn og út.
„Hann náði mögnuðumárangri með Cardiff og við þurfum að fá sterkan og reyndan mann. Ég er afskaplega ánægður með að hafa fengið hann.\" segir Whelan en Wigan er í fallsæti í Championship, aðeins 18 mánuðum eftir að hafa unnið FA-bikarinn.
Uwe Rösler var rekinn úr stjórastólnum á dögunum.