Fotbolti.net
19.11.14 - 14:00
Magnús Már Einarsson

Theodór Guðni í Njarðvík (Staðfest)

Theodór Guðni Halldórsson.

Theodór Guðni Halldórsson.

Canon

Mynd: Aðsend mynd

Framherjinn Theodór Guðni Halldórsson hefur gengið til liðs við Njarðvík en hann kemur frá Keflavík.

Þessi 21 árs gamli leikmaður kom við sögu í tíu leikjum í Pepsi-deildinni í sumar en hann skoraði einnig þrjú mörk í tveimur leikjum í Borgunarbikarnum.

Í fyrra skoraði Theodór tólf mörk í tíu leikjum í 2. deildinni með Njarðvík en hann var valinn í lið ársins í kjölfarið.
Theodór spilaði með Njarðvík og skoraði mark liðsins í 2-1 tapi gegn Grindavík í æfingaleik í síðustu viku.

Fyrra markið hjá Grindavík var sjálfsmark en Björn Berg Bryde skoraði síðan sigurmarkið.

Þetta var fyrsti leikur Grindvíkinga síðan Tommy Nielsen og ÓIi Stefán Flóventsson tóku við þjálfarastarfinu.

Þá hefur Styrmir Gauti Fjeldsted fyrirliði Njarðvíkur skrifað undir nýjan tveggja ára samning við félagið.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.