Fotbolti.net
19.11.17 - 13:00
Útvarpsþátturinn Fótbolti.net

Landsliðsvalið - Baráttan um að komast til Rússlands

Auglýsing
Hverjir verða í vélinni til Rússlands?

Hverjir verða í vélinni til Rússlands?

Canon

Mynd: Sunnlenska.is - Guðmundur Karl

Íslenska landsliðið tapaði gegn Tékklandi og gerði jafntefli við heimamenn í tveimur vináttulandsleikjum í Katar í liðnu landsleikjahléi.

Elvar Geir Magnússon og Tómas Þór Þórðarson skoðuðu málin í útvarpsþættinum Fótbolti.net og fóru yfir baráttuna um að vera í landsliðshópnum fyrir HM í Rússlandi.
Hverjir fengu plús í kladdann og var það einhver sem fór langt með að eyðileggja möguleika sína á því að fá flugmiða? Miðað var við lokahópinn á EM í Frakklandi. Hverjir fara út og hverjir koma inn?

Elvar og Tómas reyndu að lauma sér inn í huga Heimis Hallgrímssonar landsliðsþjálfara. Hvernig það tókst verða hlustendur að meta!

Hlustaðu gegnum Podcast forrit
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.