Malen, Maguire, Rashford, Greenwood, Yoro, Eriksen og fleiri góðir í slúðri dagsins
banner
   þri 19. nóvember 2019 09:00
Ívan Guðjón Baldursson
Southgate um framtíðina: Fer allt eftir hvernig gengur á EM
Mynd: Getty Images
Enska landsliðinu hefur gengið vel undir stjórn Gareth Southgate en hann viðurkennir að hann muni segja upp starfinu ef ekki gengur vel á lokakeppni EM á næsta ári.

England rúllaði yfir undanriðilinn og er landsliðið talið meðal þeirra sigurstranglegustu næsta sumar.

„Það fer allt eftir því hvernig gengur næsta sumar. Ég er raunsær og veit að þessir hlutir breytast hratt. Almenningsálit skiptir miklu máli og það getur breyst á einni viku," sagði Southgate spurður hvort hann yrði enn við stjórnvölinn á HM 2022.

„Við höfum trú á því sem við erum að gera en við verðum að ná næsta kafla hárrétt því annars lítur þetta út fyrir að hafa verið til einskis."
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner