Fotbolti.net
19.11.26 - 11:00
Kári Snorrason

Kveðja U21 en gætu fengið kallið í A-landsliðið

Eggert hefur verið fyrirliði U21 árs landsliðsins.

Eggert hefur verið fyrirliði U21 árs landsliðsins.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

Eimskip
Meirihluti leikmannahóps íslenska U21 landsliðsins hefur nú lokið ferli sínum með liðinu þar sem leikmenn fæddir 2004 og 2005 verða ekki gjaldgengir í næstu undankeppni.

Liðið tapaði fyrir Grikklandi í vítaspyrnukeppni á dögunum í umspili um sæti á EM í Serbíu og Albaníu næsta sumar.

Nýr hópur tekur því við keflinu í næstu undankeppni, alls eru þetta 18 leikmenn sem hafa verið í síðustu tveimur hópum U21-liðsins sem eru að stíga upp.

Næsta verkefni A-landsliðsins verður í mars á nýju ári í undankeppni fyrir EM 2028. En hverjir úr fráfarandi hópi U21-liðsins banka fastast á dyr A-landsliðsins?

Lúkas Blöndal Petersson varði mark U21-liðsins í undankeppninni og gerir hann klárlega tilkall sem kostur í A-hópinn sem þriðji markvörður. Hann leikur með varaliði Hoffenheim í C-deild í Þýskalandi.

Í vörninni gerir Júlíus Mar Júlíusson tilkall en hann hefur verið í mjög svo stóru hlutverki hjá Kristiansund í norsku Eliteserien á tímabilinu.

Þá gerir Davíð Helgi Aronsson sömuleiðis tilkall í A-hópinn en hann er þó áfram gjaldgengur í U21-landsliðið þar sem hann er fæddur árið 2007.

Fyrirliði U21-liðsins, Eggert Aron Guðmundsson, var frá vegna meiðsla í umspilsleikjunum og var það mikil blóðtaka. Hannhefur spilað tvo vináttuleiki fyrir A-landsliðið og var hann kallaður inn í hópinn fyrir leik Íslands gegn Úkraínu í Varsjá fyrir rúmu ári síðan. Eggert hefur heillað með Brann og á svo sannarlega erindi í A-hópinn.

Hlutabréfin í Amin Cosic hafa farið í gegnum þakið á árinu og hefur hann farið frá því að spila í Lengjudeildinni og í Meistaradeildina á rúmu ári. Hann þarf að gera upp hug sinn og ákveða hvort hann vilji spila fyrir landslið Íslands eða Bosníu og Hersegóvínu. Spurning hvort það ráðist af því hvaða þjóð velur hann fyrst í A-landsliðið?

Ágúst Orri Þorsteinsson hélt til Hollands í haust og hefur hann verið í stóru hlutverki með Excelsior í Eredevise. Verður klárlega nafn á blaði ef Arnar vill fá nýja kantmenn í hópinn.

Það er ekkert grín að komast í A-landsliðið sem framherji. Benóný Breki Andrésson lék sinn fyrsta leik fyrir A-liðið fyrr á árinu, er Ísland mætti Japan í vináttuleik. Benóný klárlega spennandi kostur en samkeppnin er hörð.

Daníel Tristan Guðjohnsen og Viktor Bjarki Daðason eru áfram gjaldgengir í U21. Daníel var í þokkalega stóru hlutverki með A-landsliðinu í fyrra og ætti það ekki að koma neinum á óvart verði hann með sitt sæti í hópnum í mars.

Það hefur aðeins hægst á markaskorun Viktors Bjarka með félagsliði sínu FCK, en að vera 18 ára og byrjunarliðsmaður hjá félagi að þeirri stærðargráðu segir sitt.

Stíga upp úr U21:
Ásgeir Orri Magnússon (m) – Keflavík
Halldór Snær Georgsson (m) – KR
Lúkas J. Blöndal Petersson (m) – Hoffenheim

Amin Cosic – Viking FK
Ágúst Orri Þorsteinsson – Excelsior
Baldur Kári Helgason – FH
Benoný Breki Andrésson – Stockport FC
Daníel Freyr Kristjánsson – Lyngby
Freyr Sigurðsson – Fram
Haukur Andri Haraldsson – ÍA
Helgi Fróði Ingason – Helmond Sport
Hilmir Rafn Mikaelsson – SK Sigma Olomouc
Hlynur Freyr Karlsson – Breiðablik
Hlynur Þórhallsson – Þróttur R.
Júlíus Mar Júlíusson – Kristiansund BK
Logi Hrafn Róbertsson – IFK Varnamo
Tómas Orri Róbertsson – FH
Eggert Aron Guðmundsson - Brann

Áfram gjaldgengir:
Daníel Tristan Guðjohnsen – Malmö FF
Davíð Helgi Aronsson – Lyngby
Galdur Guðmundsson – KR
Nóel Atli Arnórsson – Aalborg BK
Stígur Diljan Þórðarson – Víkingur
Viktor Bjarki Daðason – FC Köbenhavn
Kjartan Már Kjartansson - Brann
Lúkas Petersson er spennandi markvörður.

Lúkas Petersson er spennandi markvörður.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

Ísland tapaði fyrir Grikklandi í vítaspyrnukeppni í umspili upp á að komast á EM næsta sumar.

Ísland tapaði fyrir Grikklandi í vítaspyrnukeppni í umspili upp á að komast á EM næsta sumar.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

Þarf að velja á milli Íslands eða Bosníu og Hersegóvínu.

Þarf að velja á milli Íslands eða Bosníu og Hersegóvínu.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

Áfram gjaldgengur í U21 en bankar fast á dyr A-landsliðsins.

Áfram gjaldgengur í U21 en bankar fast á dyr A-landsliðsins.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.