Fotbolti.net
19.11.26 - 08:00
Jóhann Þór Hólmgrímsson

Mudryk nefnir þrjú félög sem höfðu áhuga

Mudryk nefnir þrjú félög sem höfðu áhuga
Canon

Mynd: Tottenham

Mykhailo Mudryk hefur greint frá því að þrjú félög höfðu áhuga á að fá hann til liðs við sig síðasta sumar. Hann valdi að fara til Tottenham á láni frá Chelsea.

Mudryk sneri aftur í sumar eftir að fjögurra ára keppnisbanni var aflétt.
Hann var í áhugaverðu spjalli á úkraínsku Youtube-rásinni Guest of Gordon þar sem hann kenndi úkraínska fótboltasambandinu um bannið.

Þá var hann einnig spurður út í áhugann á sér í sumar en þar sagði hann að Brighton, Brentford og Leeds höfðu öll áhuga á að fá hann í sínar raðir.

Mudryk hefur aðeins spilað einn leik fyrir Tottenham en hann gæti snúið aftur um helgina eftir meiðsli. Tottenham fær Ipswich í heimsókn á laugardaginn.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.