Fotbolti.net
19.11.26 - 08:30
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Ítalska deildin

Conte: Hringur sem verður að lokast

Conte: Hringur sem verður að lokast
Canon

Mynd: EPA

Antonio Conte segist vera spenntur fyrir því að stýra Juventus aftur og hann sér það fyrir sér gerast fyrr en síðar.
„Það er hringur sem fyrr eða síðar verður að lokast," sagði Conte.

„Það áhugaverða við samband mitt við Juventus er að það hafa komið upp tímabil áður þar sem ég hefði getað snúið aftur. Það gerðist þegar þeir ákváðu að ráða Sarri. Ég var laus og fór svo til Inter. Það gerðist svo aftur en Thiago Motta var ráðinn og ég fór til Napoli."

Conte er án félags eftir að hafa yfirgefið Napoli eftir síðasta tímabil. Hann var orðaður við Man Utd en Mauricio Pochettino tók við enska félaginu á dögunum.

Conte stýrði Juventus frá 2011–2014 og vann ítölsku deildina þrisvar. Þá vann hann ítölsku deildina fimm sinnum sem leikmaður Juventus á sínum tíma.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.