19.11.26 - 10:40
Innkastið
„Mega ekki vera litlir í sér þegar þeir eru gagnrýndir“

Ísland vann 3-0 sigur gegn Lúxemborg.

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

Úr leik Íslands og Búlgaríu í síðasta glugga.

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

Kári Árnason.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Ísland vann 3-0 sigur gegn Lúxemborg.

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

Arnar Gunnlaugsson landsliðsþjálfari og Ísak Bergmann Jóhannesson miðjumaður töluðu um það á fréttamannafundi í vikunni að það hefði verið erfitt að gera gagnrýnendum til geðs í C-deild Þjóðadeildarinnar.
Ef Ísland vann leiki, eins og 5-0 sigurinn gegn Búlgaríu, hafi umræðan verið um að andstæðingurinn væri svo slakur.
„Þetta er svoldið lose–lose riðill. Ef við vinnum segja allir að það skipti ekki máli því við áttum að gera það auðveldlega. Ef við töpum verður allt vitlaust," sagði Arnar meðal annars á fundinum.

TENGT EFNI
Ómögulegt að gera gagnrýnendum til geðs í þessum riðli
Hola sem við grófum okkur í
Rætt var um þetta í Innkastinu þar sem landsliðsglugginn var gerður upp. Þar var talað um að íslenska liðið væri alltof gott til að vera í þessari C-deild.
„Við getum ekki annað en talað um þetta, liðin sem við vorum að keppa á móti eru ekki góð. Það er bara þannig. Þá erum við ekkert að gera lítið úr íslenska liðinu sem gerði þetta faglega," segir Valur Gunnarsson, sérfræðingur Fótbolta.net.
„Ég skil þetta vel en þetta er hola sem við og Arnar Gunnlaugsson vorum búnir að grafa okkur í. Við töpuðum þessum umspilsleikjum gegn Kósovó og féllum niður í C-deild og þá tekur þetta við. Vel gert en við þurfum ekki að missa okkur í gleðinni," segir Kári Snorrason, fréttamaður Fótbolta.net.
Verið að borga fólki fyrir að segja sína skoðun
Kári Árnason, fyrrum landsliðsmaður og yfirmaður fótboltamála hjá Víkingi, segir að umræða fjölmiðla hafi átt fyllilega rétt á sér.
„Þeir verða að gera sér grein fyrir því að það er verið að borga fólki fyrir að segja sína skoðun á hlutunum. Menn mega ekki vera litlir í sér þegar þeir eru gagnrýndir. Þú ert að spila fyrir A-landslið Íslands og ef það gengur ekki vel verður maður að setja smá hita á menn svo þeir reyni að standa sig. Þeir hafa gert það, en þessi umræða eftir Búlgaríuleikinn átti fullan rétt á sér,“ sagði Kári Árna í samtali við Morgunblaðið.
„Það var ákveðið sjokk hversu slakt búlgarska liðið var. Við getum vissulega ekki valið okkur andstæðinga, ég átta mig á því, en það má samt alveg ræða það að þeir eru ekki á sama stað og þegar þeir voru upp á sitt besta. Ég skil samt líka að leikmönnum liðsins líði þannig að ekkert sé nógu gott, það er hluti af þessu. Við tókumst vel á við C-deildina og erum komnir í B-deildina núna. Þá fyrst fer að verða alvöru afrek að vinna leiki. Við viljum sjá liðið reyna sig gegn sterkari mótherjum og sjá úr hverju menn eru gerðir,"