19.11.26 - 09:30
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Nyoni: Erfitt að segja nei við stórt félag eins og Liverpool

Mynd: EPA

Mynd: EPA
Trey Nyoni, 19 ára gamall miðjumaður Liverpool, hefur fengið hlutverk í liði Andoni Iraola á þessu tímabili.
Hann hefur komið við sögu í 8 leikjum í úrvalsdeildinni en hann byrjaði sinn fyrsta leik í keppninni í naumu 1-0 tapi gegn Arsenal í byrjun þessa mánaðar.

Hann gekk til liðs við Liverpool frá Leicester þegar hann var 16 ára. Hann segir að nokkur lið höfðu áhuga á honum en Liverpool hafi verið með skýra stefnu fyrir sig.
„Ég naut mín hjá Leicester en var að komast á mikilvægan aldur og þegar stórt félag eins og Liverpool hringir er erfitt að segja nei," sagði Nyoni.
„Ég vissi að þetta yrði aldrei auðvelt að fara til félags eins og Liverpool. Ég vissi að ég þurfti að leggja hart að mér en ég þurfti á því að halda á þeim tímapunkti. Ég er svo ánægður með þessa ákvörðun."