19.11.26 - 11:11
Elvar Geir Magnússon
Ómar Björn í Val (Staðfest)

Ómar Björn Stefánsson.

Mynd: Valur

Mynd: Sævar Geir Sigurjónsson

Ómar Björn Stefánsson.

Mynd: Valur
Ómar Björn Stefánsson, sem er 22 ára sóknarleikmaður, hefur verið keyptur frá ÍA til Vals. Hann hefur gert þriggja ára samning á Hlíðarenda.
Hann spilaði 23 leiki með ÍA á liðnu tímabili og kom að sex mörkum. Ómar gekk í raðir Skagamanna frá Fylki fyrir rúmum tveimur árum.
„Ég er virkilega ánægður með að fá tækifæri til að spila fyrir Val. Pabbi lék hér á sínum tíma og bróðir minn er í liðinu, svo þetta félag stendur mér nærri. Ég er mjög hrifinn af því sem Dóri og þjálfarateymið eru að byggja upp og ætla að leggja mig allan fram í þeim kraftmikla fótbolta sem liðið mun spila. Ég hlakka mikið til að kynnast strákunum og öllum í kringum félagið og get ekki beðið eftir að tímabilið hefjist,“ segir Ómar Björn.
Halldór Árnason er tekinn við sem þjálfari Vals og hefur hann sótt þá Sigurð Arnar Magnússon frá ÍBV og Tuma Fannar Gunnarsson frá Fylki eftir að tímabilinu lauk.

TENGT EFNI
Sagt að Valur greiði 10 milljónir króna fyrir Ómar
Tilkynning Vals:
Knattspyrnudeild Vals hefur samið við sóknarmanninn Ómar Björn Stefánsson til þriggja ára, eða út tímabilið 2029. Ómar Björn kemur til félagsins frá ÍA.
Ómar Björn er fæddur árið 2004 og uppalinn í Fylki, þar sem hann steig sín fyrstu skref í meistaraflokki. Hann gekk síðan til liðs við ÍA og hefur verið í stóru hlutverki hjá Skagamönnum í Bestu deildinni. Þá hefur hann leikið með U21 árs landsliði Íslands.
Ómar Björn er fljótur og kraftmikill sóknarmaður sem nýtur sín best á vinstri kantinum. Hann er ungur að árum og á mikið inni og það er mikill fengur fyrir Val að fá hann í sínar raðir.
Knattspyrnudeild Vals býður Ómar Björn hjartanlega velkominn á Hlíðarenda.