19.12.20 - 22:07
Victor Pálsson
Ivic rekinn frá Watford eftir fjóra mánuði (Staðfest)

Mynd: Getty Images

Mynd: Getty Images
Watford hefur ákveðið að reka knattspyrnustjóra sinn Vladimir Ivic eftir aðeins fjóra mánuði í starfi.
Þessa ákvörðun tók stjórn félagsins í kvöld en Watford tapaði 2-0 gegn Huddersfield í Championship deildinni í dag.
Watford er ekki þekkt fyrir að halda í marga stjóra en liðið situr eins og er í fimmta sæti deildarinnar, níu stigum á eftir toppliði Norwich.
Ivic fékk ekki mikinn tíma til að koma sínum áherslum í gang en hann var áður stjóri Maccabi Tel Aviv í Ísrael og PAOK í Grikklandi.
Ivic er 43 ára gamall Serbi en hann lék lengst með Partizan og PAOK á ferlinum sem leikmaður.