Fotbolti.net
20.01.15 - 16:25
Magnús Már Einarsson

Scholz í Standard Liege (Staðfest) - Stjarnan fær 46 milljónir

Alexander Scholz.

Alexander Scholz.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Magnús Már Einarsson

Standard Liege hefur keypt danska varnarmanninn Alexander Scholz frá Lokeren.

Anderlecht vildi einnig fá Scholz í sínar raðir en Standard Liege hafði betur í baráttunni.

Belgískir fjölmiðlar segja að kaupverðið hljóði upp á þrjár milljónir evra.
Stjarnan hagnast vel á félagaskiptunum en Scholz lék með liðinu árið 2012 við góðan orðstír.

Þegar Stjarnan seldi Scholz til Lokeren setti félagið síðan klásúlu í samninginn um að fá prósentu af næstu sölu.

Fréttablaðið greindi frá því í desember að Stjarnan fái 10% af næstu sölu en það eru rúmar 46 milljónir króna ef kaupverðið er þrjár milljónir evra eins og talað er um.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.