Fotbolti.net
20.01.20 - 13:28
Magnús Már Einarsson

Berglind skoraði tvö gegn Roma - Sigurmark í lokin

Berglind skoraði tvö gegn Roma - Sigurmark í lokin
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Kvennaboltinn
Berglind Björg Þorvaldsdóttir stimplaði sig hressilega inn í lið AC Milan í sínum fyrsta leik í Serie A í dag. Berglind skoraði tvívegis í 3-2 endurkomusigri AC Milan gegn Roma.
Roma komst í 2-0 í leiknum en Berglind minnkaði muninn á 70. mínútu og skoraði síðan sigurmarkið með skalla á 90. mínútu.

Berglind Björg kom til AC Milan frá Breiðabliki fyrir helgi en hún mun leika í Serie A fram á vor áður en hún snýr aftur í Kópavoginn. Berglind fékk treyju númer 10 hjá AC Milan eins og sjá má hér að neðan.

AC Milan er áfram í 4. sæti eftir sigurinn en liðið er nú einungis stigi á eftir Roma sem er í 3. sæti.

Sjá einnig:
Berglind Björg: Ég mun skora meira en Zlatan
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.