Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
   mán 20. janúar 2020 10:30
Magnús Már Einarsson
Laporte mögulega með Manchester City um næstu helgi
Mynd: Getty Images
Aymeric Laporte, varnarmaður Manchester City, verður mögulega með liðinu á nýjan leik gegn Fulham í enska bikarnum um næstu helgi.

Laporte hefur verið frá keppni síðan í ágúst vegna meiðsla á hné en hann er byrjaður að æfa á fullu.

Leikurinn gegn Sheffield United í ensku úrvalsdeildinni annað kvöld kemur of snemma fyrir Laporte en hann gæti spilað um helgina.

„Aymeric leysir ekki öll vandamálin. Eftir fjóra eða fimm mánuði frá þá þarf hann tíma," sagði Pep Guardiola stjóri Manchester City.
Athugasemdir
banner
banner
banner