Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
banner
   fim 20. janúar 2022 22:19
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Mætti eitthvað illa stemmdur af Afríkumótinu
Thomas Partey.
Thomas Partey.
Mynd: Getty Images
Miðjumaðurinn Thomas Partey var inn á vellinum í um 16 mínútur þegar Arsenal tapaði gegn Liverpool í undanúrslitum enska deildabikarsins í kvöld.

Partey flaug til Englands í dag og lenti um miðjan dag. Hann er nýbúinn að ljúka þáttöku á Afríkumótinu með Gana.

Hann mætti beint úr flugi á liðshótelið hjá Arsenal og var hann á varamannabekknum í kvöld. Hann kom svo inn á sem varamaður á 74. mínútu.

Hann var eitthvað illa stemmdur og fékk tvö gul spjöld á um fjögurra mínútna kafla. Hann var rekinn af velli.

Partey mun taka út leikbannið í ensku úrvalsdeildinni og verður því í leikbanni gegn Burnley.


Athugasemdir
banner
banner
banner