Arsenal endurnýjar áhuga á Luiz - Man Utd reynir við Todibo - Tottenham vill Sudakov
   fös 20. janúar 2023 12:00
Elvar Geir Magnússon
Davíð Júlían æfði hjá NEC til reynslu
Davíð Júlían Jónsson.
Davíð Júlían Jónsson.
Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson
Davíð Júlían Jónsson, 18 ára miðjumaður Leiknis í Breiðholti, æfði fyrr í þessum mánuði hjá hollenska félaginu NEC Nijmegen.

Davíð steig upp sem einn af björtu punktum Leiknis seinni helmings tímabilsins í Bestu deildinni í fyrra. Hann var tvívegis valinn í úrvalslið umferðarinnar.

Hann hafði fyrir þann tíma verði á láni hjá Þrótti Vogum fyrri part sumars án þess að fá mörg tækifæri.

Davíð var fyrirliði 2. flokks Leiknis áður en hann steig endanlega upp í meistaraflokk í fyrra.

„Davíð er virkilega spennandi Leiknismaður og það verður gaman að fylgjast með honum á næstunni, hvort sem hann ílengist erlendis eða leggi sín lóð á vogarskálarnar fyrir Stoltið í sumar," segir á heimasíðu Leiknis.

Meðal leikmanna NEC er Andri Fannar Baldursson sem er hjá félaginu á láni frá Bologna.
Athugasemdir
banner
banner