Fotbolti.net
20.02.15 - 18:00
Magnús Már Einarsson

Fimm nýir leikmenn til KV (Staðfest)

Hugi Jóhannesson.

Hugi Jóhannesson.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

KV hefur fengið þá Huga Jóhannesson, Guðmund Sigurðsson, Sigurð Andra Jóhanns, Margeir Ingólfsson og Ásgrím Gunnarsson til liðs við sig.
,,Bjóðum þá Huga Jóhannesson, Guðmund Sigurðsson, Sigurð Andra Jóhanns, Margeir Ingólfsson og Ásgrím Gunnarsson velkomna í félagið #KVnation,\" segir á Twitter síðu KV.

Hugi, Guðmundur, Sigurður og Margeir koma allir til KV frá KR þar sem þeir eru uppaldir.

Hugi var á síðasta tímabili í láni hjá Aftureldingu en hann hefur einnig áður verið í láni hjá Ægi og KF.

Ásgrímur kemur til KV frá Reyni Sandgerði en þar hefur hann spilað undanfarin tvö ár.

Ásgrímur er fæddur árið 1994 en hann er uppalinn hjá Stjörnunni.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.