Fotbolti.net
20.02.15 - 18:30
Magnús Már Einarsson

Höttur fær leikmann frá Vancouver Whitecaps (Staðfest)

Höttur fær leikmann frá Vancouver Whitecaps (Staðfest)
Canon

Mynd: Björn Ingvarsson

Höttur hefur samið við kanadíska leikmanninn Jordian Farahani um að leika með félaginu í sumar.
Jordian er varnar- eða miðjumaður og lék síðast með U23 ára liði Vancouver Whitecaps í Kanada.

Jordian kemur til landsins í apríl eða þegar allir pappírar liggja fyrir varðandi atvinnuleyfi og félagaskipti.

Fyrr í vikunni fékk Höttur varnarmanninn Ísleif Guðmundsson til liðs við sig en liðið mun leika í 2. deildinni í sumar eftir að hafa unnið 3. deildina í fyrra.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.