Amorim, Frank, Ten Hag, De Bruyne, Isak, Olise, Gyökeres og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   fim 20. febrúar 2020 10:00
Magnús Már Einarsson
Skýrsla vegna Laugardalsvallar klár í júní eða júlí
Frá Laugardalsvelli.
Frá Laugardalsvelli.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Þann 4. febrúar s.l. var útboð á ráðgjafarþjónustu fyrir Þjóðarleikvang ehf. auglýst á útboðsvef Innkaupaskrifstofu Reykjavíkurborgar og á evrópska efnahagssvæðinu. Markmið útboðsins er að leita tilboða í ráðgjöf um kostnaðar- og tekjumat vegna fjögurra mismunandi sviðsmynda við endurnýjun Laugardalsvallar.

Sviðsmyndirnar eru eftirfarandi;
Að aðstaða verði að mestu leyti óbreytt eða með lágmarksbreytingum og lagfæringum.
Að farið verði í viðbætur og framkvæmdir á núverandi aðstöðu til að uppfylla alþjóðlega staðla.
Að byggður verði opinn knattspyrnuvöllur með allt að 17.500 sæti.
Að byggður verði fjölnotaleikvangur með opnanlegu þaki með allt að 20.000 sæti.

Við greiningu á hverri sviðsmynd verður fjallað ýtarlega um kosti, galla, ávinning og áhættur af ólíkum leiðum. Auk þess mun kostnaðar- og tekjurammi verða settur fram fyrir hverja sviðsmynd í samræmi við fyrirliggjandi forsendur.

Áður en framangreint útboð var auglýst hafði í nóvember sl. farið fram forútboð á evrópska efnahagssvæðinu þar sem aflað var upplýsinga um áhuga og reynslu aðila af ráðgjöf um kostnaðar- og tekjumat á sviði byggingar og rekstrar fótboltaleikvanga. Niðurstaðan var sú að um miðjan desember hafði 31 aðili skráði sig inn og sótt gögn á útboðssíðuna og 13 aðilar skilað inn gögnum, þar af nokkur öflug og reynd alþjóðleg ráðgjafarfyrirtæki með mikla reynslu af byggingu og rekstri leikvanga. Í framhaldinu var lögð áhersla á að draga saman allar þær ábendingar sem frá þessum aðilum bárust og nýta við undirbúning útboðsins sem auglýst var nú í byrjun febrúar.

Eins og áður sagði er markmið útboðsins nú að leita tilboða í ráðgjöf um kostnaðar- og tekjumat vegna fjögurra fyrrgreindra sviðsmynda við endurnýjun Laugardalsvallar. Auk þess er óskað sérstaklega eftir umfjöllun í skýrslu ráðgjafa um m.a. nýtingu vesturstúku Laugardalsvallar, hvort notað verði náttúrulegt gras eða gervigras, kostnaður við útlit og skel utan um leikvanginn, fyrirkomulag við móttökurými og móttökuherbergi.

Lögbundinn tilboðsfrestur er ríflega fjórar vikur og mun honum ljúka í byrjun mars. Þá verður farið í að meta tilboðin í samræmi við matslíkan útboðsgagna og í framhaldinu verður gengið til samningagerðar við þann aðila sem á hagkvæmasta tilboðið. Reikna má með að ráðgjafar geti hafið sína vinnu í lok mars og gera má ráð fyrir að gefinn verði þriggja mánaða tími til vinnslunnar. Þannig má gera ráð fyrir því að endanleg skýrsla liggi fyrir í júní/júlí og verði þá afhent eigendum Þjóðarleikvangs ehf. sem eru Reykjavíkurborg, Ríkissjóður og KSÍ.
Af heimasíðu KSÍ.
Athugasemdir
banner
banner
banner