Mikel Arteta þjálfari Arsenal svaraði spurningum á fréttamannafundi í dag fyrir leik liðsins á útivelli gegn Tottenham, sem fer fram á sunnudaginn.
Þar var hann spurður út í slæm úrslit síðustu deildarleikja þar sem Arsenal gerði jafntefli á útivelli gegn Brentford og Wolves. Þá var hann spurður hvort félagið væri að kasta enn einum úrvalsdeildartitlinum frá sér á seinni hluta tímabils eins og hefur gerst oft áður á undanförnum áratugum.
Arsenal hefur endað í öðru sæti úrvalsdeildarinnar síðustu þrjú tímabil í röð en situr ennþá í efsta sæti sem stendur þrátt fyrir að hafa misstigið sig nokkrum sinnum. Liðið er þar að auki ennþá með í FA bikarnum, komið í úrslitaleik deildabikarsins og með fullkomið sigurhlutfall í Meistaradeildinni þrátt fyrir að hafa spilað við ansi erfiða andstæðinga.
„Við höfum verið að gera frábæra hluti á tímabilinu en við megum ekki lifa í fortíðinni, við verðum að lifa í nútíðinni. Eins og staðan er núna þá erum við í nákvæmlega þeirri stöðu sem við vildum vera í fyrir tímabilið í hverri einustu keppni," sagði Arteta.
„Það er ennþá mikið eftir af tímabilinu og það er undir okkur komið að halda áfram að spila vel til þess að ná okkar markmiðum. Við þurfum að vinna fyrir því eins og við höfum verið að gera allt tímabilið. Það er ekkert gefins á þessu gæðastigi."
Arteta sneri sér svo að jafnteflisleiknum gegn Úlfunum, þar sem heimamenn í botnliðinu voru með 0,29 í xG gegn 1,61 hjá Arsenal en leikurinn endaði með 2-2 jafntefli eftir dramatískt jöfnunarmark í uppbótartíma. David Raya og Gabriel Magalhaes fóru upp í sömu fyrirgjöf, án pressu frá andstæðingi, til að gefa Wolves jöfnunarmarkið á silfurfati.
„Þetta var mikil óheppni hjá okkur, þeir áttu eitt skot á rammann allan leikinn og það endaði í netinu og svo gáfum við þeim jöfnunarmarkið á ótrúlegan hátt. Þetta er eiginlega óskiljanlegt, en þetta er partur af því sem gerir fótboltann að svona fallegri íþrótt," hélt Arteta áfram.
„Þetta var bara einn kafli á löngu tímabili. Kafli 27 segir: 'allt í lagi, við gerðum jafntefli við Wolves með þessum hætti.' Það sem ég hef áhuga á er næsti kafli. Þar sjáum við úr hverju við erum gerðir. Við verðum að bregðast við."
Þetta er svipað og það sem Arteta sagði eftir tap gegn Manchester United í lok janúar og hafa lærlingar hans ekki tapað leik síðan.
25.01.2026 20:24
Arteta: Nú kemur í ljós úr hverju við erum gerðir
Athugasemdir




