Fotbolti.net
20.02.26 - 15:15
Brynjar Ingi Erluson

Palace íhugar að reka Glasner - Keane orðaður við stöðuna

Palace íhugar að reka Glasner - Keane orðaður við stöðuna
Canon

Mynd: EPA

Stjórn enska úrvalsdeildarfélagsins Crystal Palace er alvarlega að íhuga stöðu austurríska stjórans Oliver Glasner en þetta herma heimildir BBC.
Mun Glasner þrauka út tímabilið? - „Sjáum til hvað framtíðin ber í skauti sér“
TENGT EFNI

Mun Glasner þrauka út tímabilið? - „Sjáum til hvað framtíðin ber í skauti sér“

Palace hefur aðeins unnið einn leik af síðustu fimmtán í öllum keppnum.

Glasner gagnrýndi stjórnina eftir janúargluggann þar sem liðið missti fyrirliðann Marc Guehi, en hann hélt starfinu þrátt fyrir að láta stór orð falla um slakan stuðning stjórnarinnar á leikmannamarkaðnum.

Úrslitin eru ekki heldur að skila sér og segir BBC að Palace sé að íhuga stöðu Glasner. Örlög hans verða líklega ráðin ef liðið tapar stigum gegn botnliði Wolves um helgina.

Alex Crook hjá TalkSport segir að Robbie Keane, fyrrum leikmaður Tottenham og írska landsliðsins, komi til greina í stjórastöðuna hjá Palace, en hann þjálfar nú ungverska liðið Ferencvaros.

Keane tók við Ferencvaros á síðasta ári og gerði þá að deildarmeisturum. Liðið er öðru sæti deildarinnar sem stendur og í umspili í Evrópudeildarinnar.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.