Fotbolti.net
20.02.26 - 17:19
Ívan Guðjón Baldursson

Sir Jim Ratcliffe sleppur við sekt

Sir Jim Ratcliffe sleppur við sekt
Canon

Mynd: EPA

Sir Jim Ratcliffe, hluteigandi og stjórnandi hjá Manchester United, verður ekki sektaður af enska fótboltasambandinu eftir umdeild ummæli um innflytjendur í Bretlandi.
Skoða hvort Ratcliffe hafi brotið reglur með ummælum um innflytjendur
TENGT EFNI

Skoða hvort Ratcliffe hafi brotið reglur með ummælum um innflytjendur



Ratcliffe hélt því fram að Bretland væri orðið að nýlendu fyrir innflytjendur og fór það ekki vel í fótboltaheiminn eða aðra stjórnendur Rauðu djöflanna. Manchester United er með ríka sögu innflytjenda að baki og gaf félagið út yfirlýsingu eftir ummæli Ratcliffe.

Man Utd gefur út yfirlýsingu eftir ummæli Ratcliffe
TENGT EFNI

Man Utd gefur út yfirlýsingu eftir ummæli Ratcliffe



Ratcliffe baðst afsökunar eftir ummælin og fékk hann einskonar viðvörunarskilaboð frá stjórnendum enska fótboltasambandsins, en slapp við sekt.

Ummælin voru meðal annars gagnrýnd af öllum stærstu stuðningsmannahópum Man Utd og af forsætisráðherra Bretlands, Sir Keir Starmer.

Fyrr í dag svaraði Michael Carrick þjálfari Man Utd spurningum á fréttamannafundi og sagðist vera stoltur af ríkri og fjölbreyttri sögu félagsins þar sem leikmenn og stuðningsmenn hafa komið frá hinum ýmsu bakgrunnum.
Sir Jim Ratcliffe sleppur við sekt
Canon

Mynd: EPA

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.