Fotbolti.net
20.03.15 - 13:30
Alexander Freyr Tamimi

Eiður Smári snýr aftur í landsliðið (Staðfest)

Return of the King.

Return of the King.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Eiður Smári Guðjohnsen er kominn í íslenska landsliðið á nýjan leik, en þessar frábæru fréttir fengust staðfestar á blaðamannafundi þjálfaranna Lars Lagerback og Heimis Hallgrímssonar rétt í þessu.

Eiður Smári verður í landsliðshópnum sem mætir Kasakstan í undankeppni EM 2016 þann 28. mars næstkomandi, en hann spilaði síðast fyrir Ísland á móti Króatíu í Zagreb í umspili um sæti á HM 2014 fyrir tæpu einu og hálfu ári.

Eftir leikinn í Króatíu sagði Eiður Smári klökkur í sjónvarpsviðtali við RÚV að þetta væri líklega hans síðasti landsleikur, en hann gæti snúið aftur 494 dögum síðar í Astana, höfuðborg Kasakstan.
Eiður Smári er 36 ára gamall en hefur upplifað sannkallaða endurnýjun lífdaga með Bolton í Championship deildinni, þar sem hann hefur verið frábær.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.